Leigja sal

BAKKASKEMMAN

Hér á árum áður var fiskverksmiðja í húsnæði Granda Mathallar við Grandabryggju. Til að minna á þessa skemmtilegu sögu höfum við byggt fjölnota rými sem við köllum Bakkaskemman.


Í Bakkaskemmunni á Granda gefst gestum kostur á að sjá þegar ferskur fiskur, sem landað er við Grandabryggju, kemur inn á Fiskmarkað Íslands. Það skapast mikið líf við löndun enda ys og þys að ferja ferskum fisk úr skipum og inn á fiskmarkaðinn.


Gestum Granda Mathallar er frjálst að fá sér sæti í Bakkaskemmunni með sínar kræsingar og snæða þar svo lengi sem rýmið er ekki bókað.


Bakkaskemman á Granda er til leigu. Hægt er að bóka Bakkaskemmuna fyrir lifandi framkomur, einkasamkvæmi, fundi, veislur eða hverskyns viðburði. Skilyrði er að kaupa veitingar frá Granda Mathöll á viðburði eftir kl. 17:00 og um helgar, en innifalið í leigu er afnot af hljóðkerfi og skjá.


Bakkaskemma er ekki leigð út á rauðum dögum eins og 17. júní, Sjómannadaginn og á Menningarnótt.


Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar.

[email protected]

Share by: